Einstök augnablik!
Athafnirnar mínar eru:
Persónulegar
Fyrir hverja athöfn sest ég niður með ykkur og fæ að heyra ykkar persónulegu sögu. Afraksturinn úr því samtali verður svo aðaluppistaða athafnarinnar, sem verður því alveg einstök.
Líflegar
Gleði og húmor eru hornsteinninn í athöfnunum mínum. Lífið er skemmtilegt og þessi tímamót eiga að vera hamingjuríkar stundir sem koma fólki til að hlæja og gráta. Hvað er annars ekki fyndið við svaramanninn sem gleymir hringunum eða ungabarnið sem prumpar í miðri athöfn?
Hátíðlegar
Athafnirnar mínar eru sjaldnast mjög alvarlegar, en þær eru hinsvegar alltaf hátíðlegar. Hátíðleikinn fellst í hefðunum og þeirri virðingu sem við sýnum litla barninu eða ástfangna parinu með því að fagna með þeim.
Húmanískar
Athafnirnar mínar eru trúarlega hlutlausar og henta því bæði trúlausum sem trúuðum, en meginn kjarninn í boðskapnum er húmanísk lífssýn. Húmanistar aðhyllast vísindalega skynsemishyggju og tala fyrir frjálsri hugsun og siðrænu samfélagi.