Tenejól
Lag: We don’t Talk About Bruno úr Encanto eftir Lin-Manuel Miranda. Texti: Inga Auðbjörg K. Straumland
Stöndum ekki í stórræðum í ár
Stöndum ekki í þessu, – sko
Ég vil ekkert jólastress
- Hún vill ekki jólastress
Ég fyrirlít að þurfa’ð fara,
í fleiri fjölskylduboð
- Bévítans bannsettu boð
Leiðindalið sem mér líkar ei við
- Frændur
Meðalmennska, mögl og miðjumoð!
- Mestmegnis allt Miðflokksmenn…
Loksins lausn í koll mér laust
- Segð’okkur frá því!
Og upp á yfirborðið braust
- Ég held ég væri alveg til í smá frí…
Hugmynd sem ég fékk í haust
- Ekki fjármagnað, hvað með það…
Höldum jólin á Tenerif’í ár
Höldum jólin á Tene
Ég vil forðast frostið sem er nauðandi og nístandi
Get ekki heldur vindinn sem er gnauðandi og gnístandi
Heldur vil ég fá að finna heitan sand og sól.
Enn eitt jólaball, börnin grenja, skríkja,
Skrækir sker’í eyru, meira nammi sníkja
Skil varla’ð nokkur nenn’að halda jól,
Ég vil bara sól…
Skatan kæst, malt og appelsín,
Hvað við eldum næst, já kalkún eða svín
Heljar-havarí, ég vel Kanarí
Höldum jólin á Tenerif’í ár
Höldum jólin á Tene
Smákökur og sörur eru ekki mitt fag!
- Nei, nei
Versla jólagjafirnar á aðfangadag
- Nei, nei
Í fyrra át ég allt of mikið kjöt og fékk hjartaslag
- Nei, nei!
Vil halda jólin með sand og sólarlag
Sæt ég verð sko með sundbolafar
Og svo sóla ég mig niðri á strönd
Alsæl verð ég með sand allstaðar
Sit með sangriuglasið í hönd
- Fer ekk’í jólakött í ár
Sæt ég verð sko með sundbolafar
Niðr’á Amríkuströnd
Ullarnærfötin heima
Ó elsku suðræna sól
- Hey, sys, settu sólkrem á mig…
Ó, suðræna sól, ó, suðræna sól
Ó, Tene
Förum strax til Tene
Bókum okkur flug strax til Tene
Byrjum að pakka og plana Tene
- Jólamatur, á Klörubar!
- Vitlaus eyja!
Erindin endurtekin í skemmtilegri kakófóníu