Entries by inga

Jólakærasta

Let me be your star, e. Marc Shaiman RÓMANTÍKER: Er kólnar á ný, Ég í hjarta mér finn Það að kærleikurinn, á mig kallar. Við klukknanna hljóm, Heyri bergmála óm: Mitt harmakvein — Að ég sé ein, Í Kringlunni ráfa, og kík’eftir þér, Umkringd fólk’en samt er Einmana Svo augljóst það er mér; Það sem […]

Jólabókaflóð

We need a little Christmas, e. Jerry Herman Ertu í vanda?Hafa þín gjafainnkaup valdið þráhyggju?Dragðu djúpt andann.Nú skaltu varpa öllumþínum áhyggjum frá. Því að lausnin hún er íslensk.Lausnin hún er auðveld.Fyrirhafnarlítil,gáfuleg og geðfelld.Já, hún kjarnar okkar arfleifð.Skikkanleg og skotheld.Nei, þú þarft ekk’að leita lengur.Nau, sjáðu þú ert hólpinn, drengur! Gakktu í bæinn,gætirðu fundið fínnaskjól frá […]

Græn af öfund

Defying Gravity – Stephen Schwartz Elskan mín, getum við ekki bara haldið heilög jól, í stað þess að ganga af göflum?Er þetta málið?Að ganga allt of langt?Er ekki kannski rangt,Að kasta sínu kaupi?Taka þátt í þessu hlaupi? Er ekki máliðað setja markið hátt?Mér finnst það óréttlátt,að láta sér það duga,að horf’á ókunnuga…Svo ef þér finnst […]

Stormur, stígðu dans

Lag: Kristen Anderson-Lopez og Robert Lopez (Let it go úr Frozen). Texti: Inga Auðbjörg K. Straumland Í kvöld er kalt og grámyglulegt Ekki snjókorn er að sjá Í móðunni er ekkert Sem að mætir minni þrá Því gráleit grundin gerir lítið fyrir þann Sem að kafaldsbyl, krap’ og kafsnjó ann. – Breytist á himni birtustig […]

Jólapakkagjafaborðakrulluskurðartæki

Já, jólapakkagjafaborðakrulluskurðartæki Í gjafaborðaöskjuna  Ég skurðartækið sæki Pakkaborða upp á punt Ég inn í tækið kræki Jólapakkagjafaborðakrulluskurðartæki! – Um-dittle-ittl-um-dittle-I Um-dittle-ittl-um-dittle-I Um-dittle-ittl-um-dittle-I Um-dittle-ittl-um-dittle-I – Ég fór í Pennann fyrr í dag Og furðulostin stóð Á starfsmann starði, nú var lag En stóð svo þarna rjóð. Því fyrir þetta fyrirbæri Fann ég ekkert nafn Sko, fann ég […]

Aftur heim

Lag: Alan Menken, Go the distance úr Hercules. Texti: Inga Auðbjörg K. Straumland Einn á aðventu, óralangt í frá Finn að fjarlægðin hún hefur fært mér svo margt Þó mig umvefur, þessi mikla þrá Þegar mæddur mæni, út í jólamyrkrið svart – Er ég horfi heim, yfir hafið bláa Hugur minn hjá þeim, sem mitt […]

Í jólafrí

Lag: How far I’ll go úr Moana, e. Lin-Manuel Miranda. Texti: Inga Auðbjörg K. Straumland Ég hef hlakkað svo til aðvent’og jóla Skussi, ég er í skóla, Skelfilega þrái frí Ég þarf bar’að þrauk’í nokkra daga Því það myndi loks laga Skólaþolsins skúraský – Verð nú loksins frjáls Hverfur hrímkalt haust Karpið sem ég kaus […]

Tenejól

Lag: We don’t Talk About Bruno úr Encanto eftir Lin-Manuel Miranda. Texti: Inga Auðbjörg K. Straumland Stöndum ekki í stórræðum í ár Stöndum ekki í þessu, – sko Ég vil ekkert jólastress Hún vill ekki jólastress Ég fyrirlít að þurfa’ð fara, í fleiri fjölskylduboð Bévítans bannsettu boð Leiðindalið sem mér líkar ei við Frændur  Meðalmennska, […]

Þriðja vaktin

Lag: Surface Pressure úr Encanto, eftir Lin-Manuel Miranda. Texti: Inga Auðbjörg K. Straumland – Skúra gólfið, skreyta húsið  Skipuleggja allt fjölskyldubrasið Kveikj’á kertum, kaupa búsið Komast að því að hálftómt er glasið Skylt að baka sextán sortir Skreyta kransinn og skrifa á kortið – Samverudagatal, aðventulagaval, Kennaragjafir og kerti á grafir, sko – Því þriðja […]

Wash with Similar Colours

Ég keypti mér regnbogalitaðan kjól fyrir einhverjum árum. Löngu áður en ég skilgreindi mig opinberlega sem tvíkynhneigða eða hinsegin yfirleitt, enda ein af þeim fjölmörgu sem fundu sig í gagnkynja sambandi, þar sem loddaralíðanin gagnvart hinseginleikanum læðist að. Ég held ég hafi alltaf talið mig hallast að karlmönnum aðallega, enda samfélagið fyrir löngu búið að […]